18 febrúar 2006

6. GP á Idolinu í Smáralind

Í gærkvöldi fóru næstum 30 krakkar og foreldrar úr bekknum á Idol-ið. Allir skemmtu sér konunglega og studdu sinn uppáhaldssöngvara dyggilega. Gaman að sjá hvernig svona sjónvarpsþáttur verður til.

Kíkið endilega á myndasíðuna, þar er fullt af myndum frá kvöldinu.

07 desember 2005

Piparkökuhús

Anna Jóna móðir Bjarna Þórs hefur haft þann GÓÐA sið að koma færandi hendi í bekkinn á aðventunni með piparkökuhús.

Í morgun birtist hún svo með húsið sem er eins og alltaf ótrúlega flott !

Það var greinileg eftirvænting og strax byrjað að spá í hvernig þetta og hitt væri gert. Flottast þótti lausnin með skorsteininn, en hann er settur saman úr súkkulaði.

Stefán tók myndir, þið getið séð þær á myndasíðunni eða með því að smella hér

04 desember 2005

Myndir komnar frá jólahlaðborðinu

Kíkið endilega á myndasíðuna,fullt af myndum frá Lækjarbrekku í dag. Frábær matur eins og við var að búast, við þökkum Elísabetu og Guðmundi og starfsfólki Lækjarbrekku / Kornhlöðunnar kærlega fyrir okkur.

01 desember 2005

Jólahlaðborðið er á sunnudaginn

Muna ekki allir eftir jólahlaðborðinu á Lækjarbrekku á sunnudaginn kl. hálfeitt ?

23 nóvember 2005

Bekkjarkvöld



Fyrsta bekkjarkvöld vetrarins var í kvöld. Krakkarnir sýndu hæfileika sína með glæsilegum skemmtiatriðum. Við fengum m.a. að sjá Geimgellurnar, Svínasúpuna, Stelpurnar og svo var spilað listavel á þverflautu og píanó. Hægt er að skoða myndir frá kvöldinu með því að smella á linkinn "MYNDIR" hér til hægri.

18 nóvember 2005

jólahlaðborð

Sunnudaginn 4.des kl.12 .30 stefnum við á að fara í jólahlaðborð á Lækjarbrekku. Það eru Elísabet og Guðmundur, foreldrar Stefáns sem eru svo rausnarleg að bjóða okkur. Nánar um þetta þegar nær dregur.

15 nóvember 2005

skautaferð

Á fimmtudaginn stóðu Margrét og Stefán fyrir bekkjarferð 6.GP. í skautahöllina í Laugardal. Flest allir krakkarnir mættu og margir af þeim fullorðnu líka.


Allir skemmtu sér konunglega í diskóljósunum og krakkarnir sýndu meistaratakta á skautunum. Fullorðna fólkið var ekki alveg eins duglegt að renna sér en af þeim sem hættu sér útá ísinn þótti Margrét áberandi best.





Á meðan svellið var slípað hittust svo allir upp í stúku og fengu sér kakó og heimabakaðar kökur frá Önnu Jónu.